18. september 2007 – Leiðtogar alls staðar að úr heiminum koma saman til fundar á vettvangi Allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna í tilefni af árlegum almennum umræðum.
Ban Ki-moon framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna sagðist á blaðamannafundi í dag búast við því að á næstu dögum yrði Allsherjarþingið vettvangur meiri diplómatískrar starfsemi í því skyni að stilla saman strengi um sameiginleg mál, en dæmi væru um. Auk almennra umræðna á Allsherjarþinginu, nefndi hann mikilvæga atburði sem munu eiga sér stað í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna á næstu vikum. Meðal þeirra eru alþjóðlegir fundir um loftslagsbreytingar, Darfur, Írak, Afghanistan, Kosovo og starf “kvartettsins” svokallaða sem fjallar um deiluna í Mið-Austurlöndum. “Ég vona að við getum kortlagt áætlun og vegvísi fyrir komandi pólitískar viðræður sem byrja í Líbýu 27. október,” sagði framkvæmdastjórinn um Darfur. Ban tilkynnti að 154, þar af 80 leiðtogar ríkja og ríkisstjórna myndu taka þátt í umræðum háttsettra manna um loftslagsbreytingar 24. september. “Þetta verður óformlegur atburður þar sem leiðtogar heimsins koma saman…til að takast á við þau vandamál sem við stöndum andspænis – ekki síst þeir sem minnst mega sín á þessari plánetu. Þeir sem eru í hættu vegna hækkandi yfirborðs sjávar og þeir sem verða að horfast í augu við minnkandi aðgang að vatni og matvælum vegna loftslagsbreytinga,” sagði framkvæmdastjórinn. Ban minnti á niðurstöður Milliríkjavettvangsins um loftslagsbreytingar (Intergovernmental Panel on Climate Change (IPCC)) þar sem raktar hafa verið niðurstöður vísindamanna um fyrirbærið auk valkosta til mótaðgerða. Ban lagði áherslu á að þjóðir heims byggjust við því af ríkisstjórnum sínum að þær gripu til aðgerða. Framkvæmdastjórnn mun hitta að máli meir en 100 leiðtoga ríkja og ríkisstjórna eða ráðherra á meðan á þinginu stendur. “Ég geri mér fyllilega grein fyrir því að vandamálin, hvort heldur sem er í Mið-Austurlöndum eða Kosovo eða Afghanistan, verða ekki leyst á einni nóttu,” sagði hann. “Leiðin er long og mikið starf framundan.” Sjá nánar: http://www.un.org/apps/news/story.asp?NewsID=23845&Cr=Ki-moon&Cr1= |