Tónninn sleginn fyrir alþjóðaár jökla 2025

Jökulsárlón.
Alþjóðaár jökla. Jökulsárlón. Mynd: UN Photo/Eskinder Debebe

Alþjóðaár jökla. Jöklar.

Alþjóðaári jökla á vettvangi Sameinuðu þjóðanna verður þjófstartað á Íslandi 17.-18.ágúst.  Meðal annars verður Jöklagrafreitur reistur við Gróttu á Seltjarnarnesi.

Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna samþykkti í desember 2022 að árið 2025 skyldi helgað varðveislu jökla og 21. mars ár hvert yrði Alþjóðlegur dagur jökla.

Alþjóðaár jökla. Amina Mohammed vara-aðalframkvæmdastjóri SÞ á Langjökli ásamt Ara Trausta Guðmundssyni jarðfræðingi
Alþjóðaár jökla. Amina Mohammed vara-aðalframkvæmdastjóri SÞ á Langjökli ásamt Ara Trausta Guðmundssyni jarðfræðingi. Mynd: UN Photo/Pier Paolo Cito
  1. ágúst gangast Rice háskóli, Jöklarannsóknafélag Íslands, Náttúruminjasafn Íslands, Veðurstofa Íslands, Háskóli Íslands, Alþjóðlega jöklabreytingasamtökin (World Glacier Monitoring Service) og Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) fyrir kynningu á lista yfir 15 valda jökla sem eru horfnir eða eiga stutt eftir.

Þessi atburður verður á Fiskislóð 31d í rými Marvaða frá 13-16.

Legsteinar úr ís

Þaðan verður haldið út á Seltjarnarnes þar sem reistur verður tímabundinn grafreitur með legsteinum úr ís í námunda við hús Náttúruminjasafns Íslands nærri Gróttu. Þar verða lesin upp eftirmæli um alla jöklana á listanum. Hugmyndin er að bæta við listann jafnóðum og jöklar hverfa.

 Langjökull.
Alþjóðaár jökla. Langjökull. Mynd: UN Photo/Eskinder Debebe

Gönguferð á Ok

Þá verður farin gönguferð á Ok í tilefni þess að fimm ár eru liðin síðan reistur var minningarskjöldur um jökulinn. Þekktastur horfinna jökla hér á landi er líklega Ok sem var afskráður sem jökull haustið 2014 þegar ljóst var hann væri  hættur að skríða undan eigin þunga.

Fimm ár eru nú liðin síðan reistur var minningarskjöldur um Okjökul og gefin út dánartilkynning í ágúst 2014. Af því tilefni verður efnt til göngu á fjallið sunnudaginn 18. ágúst í samstarfi Jöklarannsóknafélags Íslands, Ferðafélags Íslands og Rice háskóla í Texas.

Boðið verður upp á rútuferð frá Menntaskólanum við Sund inn á Kaldadal, en einnig getur fólk mætt á eigin bíl og tekið þátt í göngunni. Lagt verður af stað frá Reykjavík kl. 9.00.

(Heimild: vedur.is,  hér.)