Þriðja hvert fórnarlamb mansals er barn

Barnaleikvöllur í "Vinojug" miðstöðinni fyrir flóttamenn og farandfólk í iGevgelija, Norður-Makedóniu.Mynd: © UNODC / Alejandra Silva
Barnaleikvöllur í "Vinojug" miðstöðinni fyrir flóttamenn og farandfólk í iGevgelija, Norður-Makedóniu.Mynd: © UNODC / Alejandra Silva

 Fleiri stúlkur en drengir eru fórnarlömb mansals. Líklegara er að börn séu beitt ofbeldi en fullorðnir við mansal. Börn eru stór hluti þeirra sem sæta mansali eða þriðjungur. 30.júlí er Alþjóðlegur dagur til höfuðs mansali.

Stóraukin notkun netsins skapar nýjar hættur, enda börn oft og tíðum á  netinu án fullnægjandi eftirlits fullorðinna, að því er fram kemur í úttekt Fíkniefna- og glæpaskrifstofu Sameinuðu þjóðanna (UNODC).

Börn sæta mansali í ýmsu skyni. Þau eru þvinguð til vinnu, glæpa og betls, eða í ólöglegt fóstur. Þau eru beitt kynferðislegu ofbeldi og teknar af þeim klámmyndir. Þá er þess ógetið að þau eru þvinguð til að stunda hernað.

Mansal þrífst vegna fátæktar, sundraðra fjölskyldna og efirlitsleysis foreldra. Þá lenda börn í vandræðum, sem eru fylgdarlaus á flótta eða í leit að betri tækifærum. Þá er styrjaldarástand gróðrastía mansals.

Stúlkur skoða snjallsíma.
Stúlkur skoða snjallsíma. Mynd:
© UNODC

Þörf á aðgerðum

Baráttan gegn mansali barna hefur hingað til ekki skilað nægum árangri. Mikil þörf er á yfirgripsmiklum aðgerðum til stuðnings veikburða hópum og til að hjálpa börnum, sem lent hafa í mansali. Þetta krest samstilltra aðgerða, einnig á alþjóðlegum vettvangi.

Ríkjum ber að setja vernd barna í forgang, efla lagasetningu, bæta löggæslu og veita fé til baráttunnar gegn mansali barna.

Fíkniefna- og glæpaskrifstofa Sameinuðu þjóðanna hefur hleypt af stokkunum Bláa hjartanu. Bláa hjartað er herferð sem miðar að því að vekja fólk til vitundar um og berjast gegn mansali og áhrifum þess á samfélagið.
Fíkniefna- og glæpaskrifstofa Sameinuðu þjóðanna hefur hleypt af stokkunum Bláa hjartanu. Bláa hjartað er herferð sem miðar að því að vekja fólk til vitundar um og berjast gegn mansali og áhrifum þess á samfélagið.

Fylgdarlaus börn á flótta

Þá er vitaskuld þörf á aðgerðum til að komast fyrir rætur vandans, svo sem fáækt og ójöfnuð. Sérstaklega þarf að huga að mansal á fylgdarlausum börnum á flótta.

Alþjóðlegur dagur til höfuðs mansali er haldinn tíunda skipti í ár. Að þessu sinni er kastljósinu beint að því að vekja til vitundar um orsakir og brotalamir í tengslum við mansal barna. Lögð er áhersla á nauðsyn þess að veita fórnarlömbum á barnsaldri stuðning. Stefnumarkandi yfirvöld og almenningur eru hvött til að takast á við vandann og hraða aðgerðum til að binda enda á masal.