Þögul risaflóðbylgja ógnar lífi hundrað milljóna manna

 

22. apríl 2008. Yfirmaður Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna (WFP) hvatti í dag til bráðaaðgerða til að ráðast gegn “þögulli risaflóðbylgju” hækkandi matarverðs ella vofði hungursneyð yfir 100 milljónum manna. 

“Þetta er hið nýja andlit hungurs – milljónir manna sem hungur steðjaði ekki að fyrir hálfu ári en eru nú fórnarlömb hungursneyðar,” sagði Josette Sheeran, forstjóri WFP eftir að hún ávarpaði breska þingmenn í Lundúnum.  
Hún sagði að rétt eins og þegar flóðbylgjan reið yfir Indlandshaf árið 2004, væri aðgerða þörf á heimsvísu. Fjórðungur milljónar lest í flóðbylgjunni og tíu milljónir áttu um sárt að binda. Talið er að matvælakreppan nú sé mesti vandi sem WFP hefur glímt við í 45 ára sögu sinni. 
“Það er þörf á því að hátt settir aðilar innan alþjóðasamfélagsins grípi til stórfelldra aðgerða jafnt til að mæta brýnustu þörfum og til að finna langtíma lausnir,” bætti hún við.   
Sheeran rifjaði upp að öll met voru slegin þegar flóðbylgjan á Indlandshafi skall yfir en þá lögðu þjóðir heims fram andvirði tólf milljarða Bandaríkjadala. “Við þurfum á sams konar aðgerðum og rausn að halda í dag.” 
Hún lagði áherslu á að hlutaðeigandi aðilar tækju höndum saman til að takast á við “neyðarástandið” en WFP starfar með einstökum ríkisstjórnum, Alþjóðabankanum, Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, ýmsum hjálparsamtökum og almannasamtökum að því að samræma viðbrögð. 
Áhrifa kreppunnar er farið að gæta víða um heim. Þannig verður WFP að hætta skólamáltíðagjöfum til 450 þúsund barna í Kambódíu í maí ef ekki finnst lausn. 
Óeirðir og uppþot hafa brotist út í ýmsum löndum vegna hækkana á lífssnauðsynjum eins og hrísgrjónum, hveiti og maís.
Ban Ki-moon hvatti þjóðir heims til að grípa til aðgerða til að tryggja fæðuöryggi heimsins á fundi UNCTAD – þings Ráðstefnu SÞ um viðskipti og þróun í Gana á dögunum. Hann sagði að fyrsta skrefið væri að útvega WFP 755 milljóna dollara aukafjárveitingu til þess að fjármagna núverandi verkefni.   
 Robert B. Zoellick, forseti Alþjóðabankans fagnaði í dag frumkvæði Yasuo Fukuda sem segist ætla að setja matarkreppuna á dagskrá fundar átta helstu iðnríkja heims sem haldinn verður í Japan í júlí.