
4.nóvember 2015. Í tilefni af sjötugsafmæli Sameinuðu þjóðanna sem haldið var upp á í síðustu viku, birtum við nokkrar myndir af Íslendingum á vettvangi samtakanna og höldum því nú áfram.
Efst er Gréta Gunnarsdóttir að afhenda Ban Ki-moon, aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna trúnaðarbréf sem fyrsta íslenska kona til að gegna starfi fastafulltrúa hjá samtökinum 2011.

Hannes Kjartansson afhenti U Thant, aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna trúnaðarbréf sitt 20.maí 1965. Þótt ótrúlegt megi virðast var hann aðeins annar fastafulltrúi Íslands, því Thor Thors gegndi því embætti frá því Ísland gekk í Sameinuðu þjóðirnar og til dauðadags 1965. Margar myndir af Thor eru í afmælisútgáfu Norræna fréttabréfs UNRIC hér. Starfinu gegndi Hannes næstu sjö árin en þá tók Haraldur Kröyer við.

Boutros Boutros-Ghali var aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna 1992-1996. Þarna tekur hann á móti formönnum heimshlutahópa og er Gunnar Pálsson, fastafulltrúi Íslands þarna fyrir hóp Vestur-Evrópu og annara ríkja, eins og það heitir á vettvangi samtakanna, 19.maí 1995.

Kofi Annan, var arftaki Boutros-Ghali og gegndi embætti frá 1997 til ársloka 2006. Forseti Íslands er allajafna ekki fulltrúi Íslands á vettvangi Sameinuðu þjóðanna en þó hafa bæði Ólafur Ragnar Grímsson og forveri hans Vigdís Finnbogadóttir látið þar að sér kveða. Hér sést Ólafur Ragnar og eiginkona hans Dorrit Moussaieff í heimsókn hjá Kofi Annan og hinni sænsku konu hans, Nane 28.apríl 2004.
Hjálmar W. Hannesson, fastafulltrúi Íslands var einn af vara-forsetum sextugasta og annars allsherjarþingsins og sést hér stýra fundi þess 26.nóvember 2007.

Oftast eru það forsætis- og utanríkisráðherra sem sækja fundi Sameinuðu þjóðanna en það er síður en svo einhlítt og margir aðrir ráðherrar tala fyrir sínum málaflokkum. Hér tekur Guðlaugur Þór Þórðarson, þáverandi heilbrigðisráðherra þátt í umræðum á allsherjarþinginu um HIV/Alnæmi 10.júní 2008.

Þingmenn sitja oftast í sendinefnd Íslands á allsherjarþinginu og 1995 sat Halldór Blöndal, sérstakan fund þingforseta.

Halldór Ásgrímsson, sat margoft allsherjarþingið enda utanríkis- og síðan forsætisráðherra um árabil. Hér sést hann ásamt ásamt diplómötunum Þorsteini Ingólfssyni, Hjálmari W. Hannessyni, og í aftari röð Stefáni L. Stefánssyni og Axel Nikulássyni 25.september 1998.

Davíð Oddsson, tók margoft þátt í umræðum leiðtoga á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna enda sat hann í embætti forsætisráðherra lengur en nokkur annar (1991-2004), auk þess sem hann var utanríkisráðherra í eitt ár.

Þátttaka Íslands í allsherjarþinginu haustið 2008 fór fram í skugga efnahagskreppu. Geir H. Haarde, forsætisráðherra sat þingið, en við hlið hans er Hjálmar W. Hannesson, fastafulltrúi, og diplómatarnir Sturla Sigurjónsson og Harald Aspelund. Í aftari röð má þekkju konu Geirs, Ingu Jónu Þórðardóttur og aðstoðarkonu hans Ragnheiði Elínu Árnadóttur, auk Bjarna Sigtryggssonar, diplómats.

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra tók þátt í umræðum um þróun í Afríku 22.september 2008, en hún veiktist alvarlega í New York í þessari ferð og var skarð fyrir skildi þegar íslensku bankarnir riðu til falls þá um haustið.

Það kom í hlut Svandísar Svavarsdóttur, umhverfisráðherra að ávarpa Rio+20 ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Rio de Janeiro 22.júní 2012.

Jóhanna Sigurðardóttir, varð fyrsta kona til að ávarpa allsherjarþingið sem forsætisráðherra Íslands. Hér tekur hún þátt í umræðum leiðtoga um Þúsaldarmarkmiðin um þróun 22.september 2010.

Ban Ki-moon, aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna heimsótti Íslands 2013, og selir á Jökulsárlóni á Breiðamerkursandi veifuðu til ljósmyndara hans Eskinder Debebe með sporðinum.

Tugir Íslendinga starfa eða hafa starfað hjá Sameinuðu þjóðunum og hér er einn þeirra, Árni Snævarr, upplýsingafulltrúi ásamt Ban Ki-moon á þingi Alþjóða Ólympíuhreyfingarinnar í Kaupmannahöfn 2009.