12. mars 2007 – Ríkisstjórn Súdans ber án tafar að samþykkja að sameiginleg friðargæslusveit Sameinuðu þjóðanna og Afríkusambandsins taki sér stöðu í Darfur. |
Jafnframt er skorað á stjórnina að hætta árásum á óbreytta borgara og á uppreisnarmenn að virða mannréttindi. Þetta er niðurstaða hátt settrar sendisveitar Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna en skýrsla um heimsókn nefndarinnar til svæðisins var birt í dag í Genf.
Sendisveitin fékk ekki vegabréfsráritun til að heimsækja Darfur en hitti engu að síður hundruð manna að máli og fór yfir þúsundir blaðsíðna af skjölum um mannréttindaástandið. Nefndin starfaði frá 5. febrúar til 5. mars og heimsótti Addis Ababa, N´Djamena, Abeche og flóttamannabúðirnar í austur Tsjad.
“Gróf og kerfisbundin mannréttindabrot eru framin og alþjóðleg mannúðarlög fótum troðin”, segir nefndin í 35 blaðsíðna skýrslu til Mannréttindaráðsins en fjórði fundur þess hefst í Genf í dag.
Sjá nánar:
http://www.un.org/apps/news/story.asp?NewsID=21835&Cr=sudan&Cr1=