Flóttamenn. Alþjóðlegi flóttamannadagurinn. Þrír fjórðu hlutar fullorðinna styðja að veita skuli þeim hæli sem flýja stríð eða ofsóknir. Þetta er niðurstaða veigamikillar alþjóðlegrar skoðanakönnunar í aðdraganda Alþjóðlega flóttamannadagsins 20.júní.
Stuðningur við að veita fólki hæli hefur dalað í nokkuð mörgum löndum frá þeim mikla stuðningi sem mældist 2022 í kjölfar allsherjar innrásar Rússlands í Úkraínu. Könnunin náði til fimmtíu og tveggja ríkja í heiminum.
Danmörk Finnland og Svíþjóð í könnuninni
Fimm hundruð manns í hverju þriggja Norðurlandanna, Danmörku, Finnlandi og Svíþjóð, tóku þátt í könnuninni.
Almennt var viðhorf í garð flóttamanna heldur jákvæðara í Norðurlöndunum þremur en að meðaltali í ríkjunum fimmtíu og tveimur.
Þegar spurt var um almenna afstöðu til þess að veita fólki hæli voru Svíar á meðal jákvæðustu þjóða. 81% svöruðu spurningunnni játandi, en Danir og Finnar (74% og 71%) voru nærri meðaltalinu (73%).
Svíar voru einnig jákvæðastir þjóðanna þriggja þegar spurt var um hvort flóttamenn hefðu jákvæð áhrif á samfélagið. Þeir voru fimmtu hæstir allra þjóðanna fimmtiú og tveggja en 59% töldu áhrifin jákvæð. Danir (46%) voru nærri meðaltalinu (44%) en Finnar (40%) heldur lægri.
Danir (47%) voru jákvæðastir þegar spurt var um árangursríka aðlögun flóttamanna að samfélaginu. Finnar og Svíar (40% báðar þjóðir) voru töluvert undir heimsmeðaltalinu (51%).
Finnland (61%) og Svíþjóð (55%) voru nærri meðallaginu (61%) þegar spurt var um fullyrðingu þess efnis að hælisleitendur væru fremur á höttunum eftir efnahagslegum ávinningi en skjóli fyrir ofsóknum. Töluvert færri Danir (50%) voru sammála þessari fullyrðingu.
Taka ber með í reikninginn að aðeins úrtökin í Danmörku og Svíþjóð teljast endurspegla fullkomlega þjóðirnar. Í Finnlandi voru aðspurðir fleiri í þéttbýli og betur menntaðir en Finnar að meðaltali.
Samstaða með flóttamönnum
Alþjóðlegi flóttamannadagurinn er að þessu sinni haldinn með kjörorðið „samstaða með flóttamönnum“ að vopni. Lögð er áhersla á að stefnt sé að heimi þar sem flóttamenn eru velkomnir. Samstaða þýðir að „dyrum sé haldið opnum “. Styrk og árangri flóttamanna er fagnað en jafnframt horfst í augu við þær áskoranir sem þeir glíma við.
António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna hvetur til alþjóðlegrar samstöðu með flóttamönnum og samábyrgðar heimsbyggðarinnar í ávarpi á Alþjóðlega flóttamannadeginum.
„Við skulum heita því að standa við sameiginlega ábyrgð veraldarinnar á því að aðstoða og bjóða flóttamenn velkomna,“ segir Guterres. „Höfum mannréttindi þeirra í heiðri, þar á meðal rétt þeirra til að leita hælis.“
Flóttamönnum fjölgar
Fjöldi flóttamanna hefur þrefaldast á síðastliðnum áratug. Við árslok 2023 voru flóttamenn 43.4 milljónir í heiminum. 2023 snéru hins vegar 1.1 milljón flóttamanna heim. Það ár jókst fjöldi flóttamanna um 7% eða um 43.4 milljónir á árinu.
Gerður er greinarmunur á flóttamönnum og farandfólki lagalega. Hins vegar glímir allt þetta fólk við sömu hættu á för sinni um heiminn. Lífsháski, nauðganir, pyntingar, mannrán, handahófskenndar frelsissviptingar, rán og mansal eru því miður daglegt brauð og ekki spurt að lagalegri stöðu fólksins.
Sjá einnig hér.