António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna fór í dag fram á fjárframlög að upphæð tveimur milljörðum Bandaríkjadala. Þetta er gert til að standa straum af mannúðaraðstoð við þau ríki sem höllustum fæti standa gagnvart COVID-19 faraldrinum.
Sameinuðu þjóðirnar biðja um mannúðaraðstoð til að verja milljónir manna og koma í veg fyrir að kórónaveiran nái að fara annan hring í kringum hnöttinn.
Kórónaveiran hefur skotið rótum í öllum heimshornum og hefur nú náð til ríkja sem nú þegar eiga undir högg að sækja vegna átaka, náttúruhamfara og loftslagsbreytinga.
Aðgerðaáætluninninni verður hrundið í framkvæmd af stofnunum Sameinuðu þjóðanna og beinni þátttöku almannasamtaka.
Markmiðin eru:
- að koma til skila búnaði til að greina veiruna og til að sinna sjúklingum.
- að koma upp handþvottaaðstöðu í flóttamannabúðum og á almannafæri þar sem þörf krefur.
- að skipuleggja upplýsingaherferð um hvernig almenningur getur varið sjálfan sig og aðra fyrir veirunni.
- að koma upp loftbrú og miðstöðvum um alla Afríku, Asíu og Suður-Ameríku ti þess að flytja hjálparstarfsfólk og birgðir þangað sem þeirra er mest þörf.
António Guterres aðalframkvæmdastjóri sagði á blaðamananfundi í New York:
„COVID-19 er ógn við gjörvalt mannkyn og því verður mannkynið allt að hefja gagnsókn. Við verðum að koma þeim til aðstoðar sem eru sérstaklega berskjaldaðir.”
Mark Lowcock framkvæmdastjóri mannúðaraðstoðar sagði:
„Það væri grimmilegt og óskynsamlegt að snúa baki við hinum fátækustu og berskjölduðustu ríkjunum. Ef kórónaveiran fær að breiðast út óáreitt munu líf milljóna manna vera í hættu, heilu heimshlutarnir kynnu að verða glundroða að bráð og veiran gæti farið annan hring um plánetuna.”