Upplýsingaskrifstofa Sameinuðu þjóðanna í Brussel (UNRIC) kynnir samkeppni um dagblaðaauglýsingu sem opin er öllum evrópskum borgurum. Árið 2000 skuldbundu veraldarleiðtogarnir sig til þess að minnka fátækt í heiminum um helming fyrir 2015. Það eru aðeins fimm ár til stefnu. Veraldarleiðtogarnir koma saman til fundar í New York í september.
Slepptu ímyndunaraflinu lausu til að minna leiðtogana á loforðin.
Hannaðu auglýsingu til höfuðs fátækt.
Bestu auglýsingarnar verða valdar af dómnefnd skipaðri kunnum sérfræðingum.
Fyrstu verðlaun eru 5000 Evrur.
Skilyrði fyrir þátttöku er að nota vígorðið WeCanEndPoverty í auglýsingunnni.
Heimasíðu verður hleypt af stokkunum í mai en samkeppnin stendur yfir frá 1. mai til 30. júní, en ef þið lumið fyrr á hugmynd sendið hana til: Info@WeCanEndPoverty.eu.
Sjá nánari upplýsingar og reglur.