Skógar hýsa fjölbreyttustu vistkerfi heims frá sjónarhóli fjölbreytni lífríkisins. Meir en 80% dýra-, jurta- og skordýrategunda veraldar búa í skógum. 21.mars er Alþjóðlegur dagur skóga.
Skógar þekja 30% yfirborðs jarðar. Þeir eru ekki aðeins búsvæði milljóna tegunda, heldur einnig uppspretta hreins lofts og vatns, og gegna vitaskuld lykilhlutverki í baráttunni gegn loftslagsbreytingum. Rannsókn Sameinuðu þjóðanna sýnir fram á að nýta má skóga til að frelsa milljarð manna úr fátæktargildru og skapa 80 milljónir grænna starfa.

Alþjóðlegur dagur skóga er gott tækifæri til að fagna dýralífi skóganna og þeim árangri sem náðst hefur við að vernda þá. Ekki er síður ástæða til að minna á loftslagsbreytingar.
Vörn gegn dýrasjúkdómum
Skógar eru vörn okkar gegn því að bakteríur og veirur flytjist frá dýrum til manna. Eyðing skóga getur því haft í för með sér alvarlegar afleiðingar fyrir lýðheilsu. Talið er að þrír af hverjum nýjum sjúkdómum á borð við HIV og SARS tengist skógareyðingu og annari breytingu landnotkunar.

Eitt mikilvægasta hlutverk skóga er að stuðla að stöðugleika loftslagsins. Þeir tempra vistkerfi, vernda fjölbreytni lífríkisins og hafa þýðingarmiklu hlutverki að gegna í kolefnishringrásinni.
Ekki má heldur gleyma að þangað sækir 1.6 milljarður manna lífsafkomu sína og því er það skuggaleg staðreyn að 100 þúsund ferkílómetrar skógar eyðast á hverju ári.
Skógar gegna veigamiklu hlutverki innan Heimsmarkmiðanna um sjálfbæra þróun. Í fimmtána markmiðinu, „Líf á landi“ segir að „vernda beri, endurheimta og stuðla að sjálfbærri nýtingu vistkerfa á landi, sjálfbærri stjórnun skógarauðlindarinnar, berjast gegn eyðimerkurmyndun, stöðva jarðvegseyðingu og endurheimta landgæði og sporna við hnignun líffræðilegrar fjölbreytni.“
Sjá nánar til dæmis:
2021 floods: UN researchers aim to better prepare for climate risks (unric.org)
Forests | Department of Economic and Social Affairs (un.org)