18. September 2007. Sextugasta og annað Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna var sett í höfuðstöðvum samtakanna í New York í dag. Almennar umræður með þáttöku þjóðhöfðingja og oddvita tuga ríkisstjórna hefjast 25. september.
Daginn áður, 24. september gengst framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna fyrir umræðum um loftslagsbreytingar.
Búist er við að höfuð viðfangsefni Allsherjarþingsins að þessu sinni verði:
— Loftslagsbreytingar
— Fjármögnun þróunar
— Framkvæmd stefnumótunar gegn hryðjverkum
— Umbætur á stjórnun samtakanna
— Þúsaldarmarkmiðin
Jafnframt mun athygli Allsherjarþingsins beinast sem fyrr að umbótum á Öryggisráðinu, skilvirkni samtakanna, efling Allsherjarþingsins, varanleg þróun og HIV/Alnæmi.
Nicholas Haysom, yfirmaður pólítískrar deildar skrifstofu framkvæmdastjóra SÞ sagði blaðamönnum að tekist yrði á vettvangi Allsherjarþingsins á fjölþjóðlegan hátt á við mörg knýjandi úrlausnarefni.
Auk sérstakra umræðna leiðtoga um loftslagsbreytingar 24. september nefndi Haysom viðræður um Darfur undir stjórn Framkvæmdastjóra SÞ og formanns Afríkusambandið, 21. september. Þar yrði reynt að afla alþjóðlegs stuðnings við þriggja liða áætlun um pólitískar viðræður sem hefjast senn í Tripoli í Líbýu; stofnun sameiginlegrar friðargæslusveitar SÞ og Afríkusambandsins og efnahagslega þróun.
Annar fundur háttsettra manna um Írak er á dagskrá 22. september en þar verða í forsæti Ban Ki-moon og Nuri al-Maliki, forsætisráðherra Íraks. Þar verður ný ályktun Öryggisráðsins um Írak krufin til mergjar og Alþjóðlegur stuðningur við Írak.
Þriðji fundurinn sem Haysom taldi mikilvægastan er ráðherrafundur um Afganistan 23. September en honum stýrir framkvæmdastjórinn og Karzai, forseti Afganistans.
Miðausturlanda-kvartetinn mun hittast sama dag og meðal annars hlýða á skýrslu sendimanns sins Tony Blair.
Þá mun tengslahópur um Kosovo deiluna sitja fundi í tengslum við Allsherjarþingið.