Grænland. Inúítar. Frumbyggjar. Mannréttindi. Danmörku og Grænlandi ber að takast á við neikvæð áhrif arfleifðar nýlendutímans. Hún hefur haft í för með sér kerfislæga kynþáttamismunun gagnvart samfélögum frumbyggja Inúíta, að mati óháðs sérfræðings, sem skipaður var af Mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna.
![Frumbyggjar. Mannréttindi](https://unric.org/is/wp-content/uploads/sites/10/2023/01/FranciscoCali.jpg)
Sérfræðingurinn, José Francisco Cali Tzay, sérstakur erindreki Sameinuðu þjóðanna um réttindi frumbyggja, hélt blaðamannafund og gaf út yfirlýsingu að lokinni tíu daga heimsókn til landanna tveggja á föstudag.
Inúítar eru nærri 90% íbúa Grænlands, sem nýtur sjálfsstjórnar innan danska ríkisins, en var nýlenda til 1953.
Að mati Cali Tzay eru enn þrándar í götu fyrir því að þeir njóti mannréttinda að fullu.
Þvingaðar ófrjósemisaðgerðir
„Mér hraus sérstaklega hugur við frásögnum Inúíta-kvenna, sem sögðu frá því að dönsk heilbrigðisyfirvöld hefðu látið setja lykkju í þær án vitundar þeirra eða samþykkis. Sumar voru ekki nema 12 ár gamlar,“ sagði Cali Tzay.
Hann minnti á frásagnir af því að börn Inúíta-kvenna sem bjuggu í Danmörku hefðu mátt sæta því að börn hafi verið tekin af þeim án vitundar og samþykkis þeirra og komið í fóstur hjá Dönum.
Cali Tzay hvatti Danmörku til að endurskoða aðferðir sínar við að meta hvenær Inúítabörn skuli fóstruð fjarri heimili. Jafnframt beri að takast á við kerfislæga hlutdrægni innan umönnunarþjónustu.
Misnotkun, fátækt og sjálfsvíg
![Alþjóðlegur dagur frumbyggja](https://unric.org/is/wp-content/uploads/sites/10/2021/08/2233576112_b136435a77_c-392x294.jpg)
Á sama tíma glímir Grænland enn við margs konar félagslegar áskoranir sökum fátækar og skorti á fullnægjandi húsnæði, viðeigandi gæða-menntun og lítillar geðheilbrigðisþjónustu, bætti hann við.
„Um 20% barna á Grænlandi, eru talin hafa sætt ofbeldi og kynferðislegri misnotkun,“ sagði hann og bætti við að þar væri ein hæsta sjálfsvígstíðni í heimi.
Í ferð sinni varð erindrekinn var við skort á verkferlum til að tryggja rétt Inúíta til að njóta réttar síns og frjálst, fyrirfram og upplýst samþykki þeirra væri tryggt. Hér vísaði hann meðal annars til þegar gefin væru leyfi í ferðaþjónustu og þegar verkefnum í atvinnulífi væri hrint í framkvæmd, svo eitthvað sé nefnt.
Hafa ber Inúíta með í ráðum
„Ég hvet stjórn Grænlands til að ráðgast við Inúíta, þegar námagröftur, ferðamennska og bygging innviða hefur áhrif á hefðbundið lífsviðurværi þeirra,“ sagði sérfræðingur Sameinuðu þjóðanna.
Hann lauk lofsorði á að hve miklu leyti Grænland stjórnaði sínum málum sjálft. Hann sagði að slíkt væri til fyrirmyndar „fyrir raunhæfa sjálfstjórn frumbyggja og friðsamlegt ferli í átt til sjálfsákvörðunar frumbyggja um allan heim.“
Um sérstaka erindreka
![Grænland Mannrétindi Frumbyggjar](https://unric.org/is/wp-content/uploads/sites/10/2019/10/HR-council-UN-Photo-Jean-Marc-Ferre-300x135.jpg)
Sérstakir erindrekar á borð við Cali Tzay fá umboð til starfa frá Mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna, sem starfar í Genf.
Þeir vinna í eigin nafni og starfa óháð ríkisstjórnum eða samtökum. Þeir eru ekki starfsmenn Sameinuðu þjóðanna og er ekki greitt fyrir vinnu sína.