24.febrúar er ár liðið frá því að Rússar gerðu allsherjarinrás í Úkraínu. Sameinuðu þjóðirnar hafa unnið að mannúðarmálum í Úkraínu frá upphafi. Sveitir samtakanna hafa raunar verið að störfum á vettvangi frá því átök hófust í austurhéruðum landsins frá 2014 og Rússar tóku Krímskaga herskildi.
Hér eru nokkrar lykiltölur um Úkraínu
frá því innrásin var gerð.
- Að minnsta kosti 8000 óbreyttir borgarar hafa verið drepnir á einu ári.
- 3 milljónir eru á flótta innan landamæra Úkraínu.
- Um 8 milljónir eða 18% landsmanna hafa flúið land. Flestir hafa leitað hælis í Póllandi, Tékkneska lýðveldinu og Þýskalandi.
- Um 18 milljónir eða nærri 40% Úkraínubúa þurfa á mannúðaraðstoð að halda.
- 80% landsmanna lifa við fátækt.
- Þörf er á 5,6 milljörðum Bandaríkjadala til að fjármagna mannúðaraðstoð í ár, 2023.
- Sameinuðu þjóðirnar og samstarfsaðilar þeirra hafa veitt 16 milljónum manna mannúðaraðstoð frá upphafi stríðsins.
- Rúmlega 1400 starfsmenn Sameinuðu þjóðanna eru við störf á vettvangi í Úkraínu.
- 7 ályktanir hafa verið samþykktar á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna.
- 240 menningar- og sögulegir staðir hafa orðið fyrir skemmdum.
- 769 árásir hafa verið gerðar á sjúkrahús og heilsugæslustöðvar.
- 8 blaðamenn hafa verið drepnir og 19 særðir.
Sjá einnig hér.
Heimildir : UN, OHCR, OIM, OCHA, WHO, UNICEF, OHCHR, UNESCO
Hér er krækja fyrir þá sem vilja láta fé af hendi rakna í þágu Úkraínubúa.