Sameinuðu þjóðirnar hafa boðið ríkisstjórn Myanmar aðstoð eftir að fellibylurinn Nargis reið yfir landið á föstudag en óttast er að 15 þúsund manns hafi látið lífið og að 30 þúsund manna sé saknað. Þá hafa milljónir misst heimili sín.
Ban Ki-moon, við athöfn í New York 5. maí.
Samræmingarskrifstofa aðgerða SÞ í mannúðarmálum (OCHA) segir að Nargis hafi komið á land í Irrawaddy héraði um 250 kílómetra fyrir sunnan Yangoun síðdegis á föstudag. Ofsaveðrið skall á Yangon síðar um kvöldið og náðu vindhviður 190 kílómetra hraða á klukkustund. Mikil flóð hafa fylgt í kjölfar fellibylsins og er stór hluti landsins undir vatni. Símalínur og rafmagnslínur hafa slitnað og er víða símasambands- og rafmagnslaust og óttast er að aðgangur að hreinu vatni verði af skornum skammti.
Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna segist felmtri sleginn yfir fréttum frá utanríkisráðuneyti Myanmar um meir en tíu þúsund manna manntjón. Hann sagði fréttamönnum í New York að vegna lélegra fjarskipta sé mjög erfitt að gera sér glögga grein fyrir skemmdum og manntjóni. .
Komið hefur verið upp neyðarstarfshopi SÞ sem er í viðbragðsstöðu, fari ríkisstjórn Myanmar fram á neyðaraðstoð.
“Sameinuðu þjóðirnar eru reiðubúnar að veita hvers kyns aðstoð og skipuleggja alþjóðlegt hjálparstarf ef þörf krefur,” segir í tilkynningu samtakanna.