Ný ofbeldisalda gæti brotist út í Darfur

Átökin í Darfur gætu magnast enn á ný með voveiflegum afleiðingum fyrir almenna borgara ef ekki tekst að skakka leikinn, segir yfirmaður friðargæslu Sameinuðu þjóðanna. 

Jean-Marie Guéhenno, sagði að 150 þúsund hefðu flosnað upp það sem af væri árinu í Darfur.

Jean-Marie Guéhenno, aðstoðarframkvæmdastjóri SÞ og yfirmaður friðargæsluliðsins gaf Öryggisráðinu skýrslu í dag um starf UNAMID, sameiginlegrar sveitar SÞ ot Afríkusambandsins. Guéhenno sagði að fyllsta ástæða væri til að hafa alvarlegar áhyggjur af öryggismálum. 
Hann sagði að árás skæruliða JEM hreyfingarinnar á stöðvar stjórnarhersins í útjaðri höfuðborgarinnar Khartoum, ykji ótta við að átökin breiddust út fyrir landamæri Darfur-héraðs. 
“Við höfum áhyggjur af því að fjölda vígamanna JEM tókst að laumast alla leið til höfuðborgarinnar óséðum og koma bæði UNAMID og stjórninni á óvart,” sagði Guéhenno.  
“Þetta atvik sýnir fram á veikleika sveitarinnar, sérstaklega hvað varðar eftirlit úr lofti.” 
Á síðustu sex vikum hefur súdanski herinn gert loftárásir á stöðvar skæruliða, þar á meðal á þorp þar sem er fjöldi óbreyttra borgara. Uppreisnarmenn hafa barist innbyrðis og farið um rænandi og ruplandi. Þar á meðal hafa starfsmenn Sameinuðu þjóðanna orðið fyrir búsifjum af þeirra völdum. 
Aðstoðarframkvæmdastjórinn sagði að þessi þróun mála græfi undan viðtleitni sendimanna SÞ og Afríkusambandsins til að koma deilendum í Darfur að samningaborðinu og gætu verið olía á eld átaka hópa sem berjast annars vegar í skjóli Súdans og hins vegar Tsjad. 
Eftir fund öryggisráðsins tjáði Guéhenno að mikil hætta væri á að þúsundir manna flosnuðu upp frá heimilum sínum ef ekki tækist að stöðva útbreiðslu átaka. Hundrað og fimmtíu þúsund manns hafa flúið heimili sín í Darfur það sem af er þessu ári. 
Alls hafa 2.7 milljónir manna orðið að yfirgefa heimili sín og þrjú hundruð þúsund hafa látist ýmist af völdum átaka, sjúkdóma eða vannæringar.