Súdan. UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, hefur tvíeflt mannúðaraðstoð sína í þágu barna sem líða fyrir átökin í Súdan. Nú er talið að 82 þúsund börn hafi flúið til nágrannaríkjanna en 368 þúsund börn hafa flosnað upp frá heimilum sínum og eru á vergangi innanlands.
Að sögn UNHCR, Flóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna hafa 164 þúsund manns flúið land frá 15.apríl. Fólkið hefur leitað hælis í Mið-Afríkulýðveldinu, Tsjad, Egyptalandi, Eþíópíu, Lýbíu og Suður-Súdan. Að auki telur IOM , Alþjóðlega fólksflutningastofnunin, að 736 þúsund hafi bæst í hóp þeirra sem eru á flótta innanlands. Sá fjöldi bætist í hóp hvorki meira né minna en 3.8 milljóna sem þegar voru á faraldsfæti áður en síðasta hrina átaka hófst.
„Grimmileg átök í Súdan hafa komið hart niður á börnum landsins,“ segir Catherine Russell forstjóri UNICEF.
Aðstoð UNICEF í Súdan
UNICEF hefur í þessari viku komið vatnsbirgðum og heinlætisbirgðum til Port Sudan og eru fleiri birgðasendingar væntanlegar á næstu dögum.
UNICEF starfar einnig náið með ríkisstjórnum landa í heimshlutanum og samstarfsaðilum í nágrannaríkjum til að efla lífsnauðsynlega aðstoð við veikburða börn.
- Drykkjarvatni er komið til fólks með vatnsflutningabílum, vatnsból hreinsuð, borað eftir vatni og gert við eldri borholur.
- Næringarþjónusta við börn yngri en fimm ára sem þjást af alvarlegri vannæringu.
- Læknisþjónusta, greining, bólusetning, nauðsynleg lyf og hjúkrunarpakkar til að tryggja aðgang að lágmarks heilsugæslu.
- Barnavernd og varnir og viðbrögð við kynbundnu ofbeldi.
- Menntunarþjónusta til að tryggja að flóttamenn, fólk sem snýr aftur heim og börn í viðtökuríkjum fái aðgang að gæðamenntun.
UNICEF hvetur alþjóða samfélagið til að styðja viðleitni Barnahjálparinnar til að takast á við vaxandi neyðarástand með auknum fjárstuðningi og úrræðum.
Almenningur getur einnig lagt sín á vogarskálarnar. Sjá UNICEF á Íslandi Neyðarákall fyrir börn í Súdan hér.