Matarskammtar minnkaðir vegna árása á flutningabíla í Darfur

17. apríl 2008 – Matvæláætlun Sameinuðu þjóðanna  (WFP) tilkynnti í dag að hún hefði neyðst til þess að minnka matarskammta til bágstaddra í Darfur vegna síendurtekinna árása á flutningabíla sem flytja matvæli til flóttamanna. WFP sér meir en tveimur milljónum manna sem flosnað hafa upp frá heimilum sínum í Darfur fyrir matvælum.

WFP fæðir tvær milljónir uppflosnaðra manna í Darfur. Hér sést leikarinn George Clooney, friðar-sendiherra Sameinuðu þjóðanna í heimsókn í flóttamannabúðum.

Á þessu ári hefur 60 flutningabílum á vegum WFP verið rænt í Darfur. 39 þeirra eru enn ófundnir og tuttugu og sex bílstjórar hafa horfið. Einn var myrtur í Darfur í síðasta mánuði.
WFP hefur ekki tekist að flytja nema helming þeirra matvæla sem flutt voru á sama tíma í fyrra í birgðageymslur. Regntíminn gengur í garð í maí og stendur yfir fram á haust. 
“Árásirnar á birgðaflutninga WFP eru árás á þá sem síst skyldi í Darfur,” segir Josette Sheeran forstjóri WFP.
Meir en 2.4 milljónir manna nutu aðstoðar WFP í marsmánuði: þar á meðal korn, matarolíu, sykur og salt. 
Búist er við að þeim sem þurfa á aðstoð að halda fjölgi í þrjár milljónir yfir regntímann.   
Sheeran hvatti stríðandi fylkingar til að vernda matvælaflutninganna og lagði áherslu á að þar sem allt að þrjár milljónir treystu á aðstoð WFP, væri þetta spurning um “líf og dauða.”  
Kenro Oshidari, fulltrúi WFP í Súdan segir að lögreglan verndi flutningabíla stundum en ekki nægilega oft.   “Við skorum á foringja uppreisnarmanna að tryggja öryggi matvælaflutninganna og viðurkenna hlutleysi þeirra sem vinna að mannúðarmálum,” segir Oshidari. “Um leið og ástandið batnar getum við aukið matarskammtana.”