6. mars 2007. Mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna (UN High Commissioner for Human Rights) Louise Arbour, sagðist í dag hafa þungar áhyggjur vegna handtöku þrjátíu og einnar baráttukonu í Teheran á sunnudag. |
Konurnar voru handteknar á friðsamlegum mótmælafundi utan við Íslömsku byltingardómstólana.Mannréttindafulltrúinn lagði áherslu á að konurnar hefðu nýtt sér frelsi sitt til að safnast saman friðsamlega og nýta málfrelsi sitt. Konurnar vildu mótmæla handtöku fimm baráttukvenna sem voru ákærðar fyrir að trufla almannareglu í kvennamótmælum á Haft-e Tir torgi í Teheran í júní 2006. Mannréttindafulltrúinn benti á að konurnar hefðu verið handteknar örfáum dögum fyrir alþjóðlegan baráttudag kvenna. Dagurinn er að þessu sinni helgaður því að hætt sé að látið óátalið að konur og stúlkur séu beittar ofbeldi. Mannréttindafulltrúinn minnti á að 8. mars á síðasta ári beittu íranskar öryggissveitir hundruð kvenna ofbeldi sem safnast höfðu saman til að krefjast réttar sins í Daneshjoo-garðinum í Teheran.