António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna hefur heitið því að beita persónulegum áhrifum sínum í þágu jafnréttis kynjanna. Þar á meðal til höfuðs lögbundinni kynferðislegri misnunun og fyrir þátttöku kvenna í friðarviðleitni. Jafnramt vill hann að tekið verði tillit til ógreiddrar vinnu á heimilum í reikningi þjóðarframleiðslu.
Aðalframkvæmdastjórinn flutti ræðu um þemað „Konur og vald” í the New School-háskólanum í New York. Guterres á tvö ár eftir í embætti og sagðist munu nota þann tíma til að „vekja athygli á og vinna í þágu jafnréttis kynjanna í öllu okkar starfi.”
Guterres sagðist munu persónulega hafa samband við ríkisstjórnir sem bera ábyrgð á lagasetningu sem felur í sér mismunun til að tala máli breytinga.
Konur í friðarferlum
Einnig kvaðst hann munu beita áhrifum Sameinuðu þjóðanna í því skyni að konur hafi jafn marga fulltrúa og karlar í friðarferlum.
„Þá mun ég beita mér fyrir því að þjóðarframleiðsla taki tillit til velfarnaðar og sjálfbærni og að ógreidd heimilisstörf verði metin að verðleikum,” sagði Guterres.
„Ég er staðráðinn í að binda enda á þá hugsun að karlmaðurinn sé skapalón alls innan Sameinuðu þjóðanna. Við erum samtök sem byggjum mjög á tölfræði. Það er þýðingarmikið að að gengið sé útfrá því að karlar séu ekki reglan og konur frávik.”
Guterres lauk ræðu sinni með því að segja: „Jafnrétti kynjanna snýst um völd; völd sem karlar hafa notið einir um árþúsundir. 21.öldin á að vera öld jafnréttis kvenna. Við skulum öll leggja okkar lóð á vogarskálarnar.“