
21. október. Evrópuþingið hefur ákveðið að veita Kongólska lækninum Denis Mukwege Sakharov-mannréttindaverðlaunin.
Mukwege er stundum kallaður “maðurinn sem gerir við konur” en hann hefur rekið sjúkrahús í austurhluta Kongó þar sem talið er að á hverri mínútu hafi einni konu verið nauðgað þegar átök stóðu sem hæst.
Mukwege hefur oft skorið tíu konur upp á dag, svo algengt hefur kynferðislegt ofbeldi gegn konum verið í austurhluta Kongó. Talið era ð tugir þúsunda kvenna hafi notið aðhlynningar á sjúkrahúsi hans í borginni Bukavu, ekki aðeins í form heilsugæslu, heldur einnig sálfræðilega aðstoð. “Konur í Kongó hafa sama rétt til verndar og allar aðrar konur á þessari jörð”, sagði Mukwege þegar hann ávarpaði Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna á síðasta ári.
Mukwege har behandlat kvinnor offer för våldtäkter, gruppvåldtäkter och andra former av sexuellt våld i årtionden. Mukwege genomför upp till tio operationer per dag och reparerar sakta men säkert resultaten av förödande sexuellt våld.
Mukwege hefur lengi þótt líklegur til að fá friðarverðlaun Nóbels. Verðlaunin, 50 þúsund evrur verða afhent við hátíðlega athöfn í Strasbourg 26.nóvember. Þau eru kennd við Andréi Sakharov, kjarneðlisfræðing og mannréttindafrömuð í Sovétríkjunum sálugu.