Ríkisstjórn Íslands hefur samþykkt að tvöfalda framlög sín til Palestínuflóttamannahjálparinnar (UNRWA) þannig að 0.2 milljónir dollara renni til starfs hennar 2007. |
Þetta var tilkynnt eftir fund Valgerðar Sverrisdóttur, utanríkisráðherra og Karen Koning AbuZayd, forstjóra UNRWA, í Reykjavík, 8. mars. Á fundinum voru rædd málefni palestínskra flóttamanna og hin ýmsu verkefni UNRWA, ástandið á Gasasvæðinu og á Vesturbakkanum.
UNRWA er stofnun sem sinnir hjálpar- og þróunarstarfi og veitir um það bil 4.3 milljónum Palestínumanna menntun, heilsugæslu, félagslega þjónustu og neyðaraðstoð á Gasasvæðinu, Vesturbakkanum, Jórdaníu, Líbanon og Sýrlandi. UNRWA var stofnað í samræmi við ályktun Allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna í desember 1949.
(Heimild: Utanríkisráðuneytið)