Austurríki, Japan, Mexíkó, Tyrkland og Úganda voru kosin í öryggisráð Sameinuðu þjóðanna til tveggja ára í atkvæðagreiðslu á Allsherjarþinginu.
Sendinefnd Austurríkis fagnar sigri.
Þrjár þjóðir kepptu um tvö laus sæti Vestur-Evrópuhópsins, Ísland, Austurríki og Tyrkland. Tyrkland hlaut í fyrstu umferð 151 atkvæði, Austurríki 133 og Ísland 87.
Úganda og Mexíkó fengu þorra atkvæða enda engin mótframboð í Asíu og Suður-Ameríku ríkjahópunum. Japanir báru hins vegar sigurorð af Írönum í Asíu-hópnum, Japan fékk 158 atkvæði en Íran 32.
Ríkin fimm koma í stað Belgíu, Indónesíu, Ítalíu, Panama og Suður-Afríku. Burkina Faso, Kosta Ríka, Króatía, Lýbía og Víetnam eiga eitt ár eftir af kjörtímabili sínu. Fimm ríki eiga svo fast sæti í ráðinu Bandaríkin, Bretland, Frakkland, Kína og Rússland.