Flóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNHCR) vekur athygli á auknum fjárframlögum Íslands til stofnunarinnar undanfarin ár á heimasíðu sinni.
„Ísland er áreiðanlegt gjafaland og samstarfsaðili UNHCR. Árið 2020 jók Ísland fjárframlög sín til UNHCR og námu þau þá 1.3 milljónum Bandaríkjadala. Ísland er í 14.sæti yfir framlög ríkja miðað við höfðatölu,” segir í kynningu á samstarfi Íslands og Flóttamannahjálparinnar. Á núverandi gengi er upphæðin rúmlega 175 milljónir króna.
Auk almennra framlaga til stofnunarinnar, fer stærstur hluti stuðnings Íslands til flóttamanna í Sýrlandi, Grikklandi og Sahelsvæðinu, auk framlags vegna kórónaveirunnar.
Helstu staðreyndir um Ísland sem gjafaland:
- Árið 2020 var rúmlega 50% framlaga Íslands óeyrnamerkt.
- Ísland veitti Grikklandi skyndi-aðstoð eftir að eldur braust út í Moria skráningar-og auðkenningarrmiðstöðinni.
- Ísland veitti UNHCR einnig neyðaraðstoð vegna kórónaveirufaraldursins og fé til Sahel-svæðisins.
- Ísland tilkynnti um 205.000 dollara framlag til að fjármagna beiðni UNHCR um aðstoð við flóttamenn í heiminum á Alþjóðlega flóttamannaþinginu í apríl 2020.
- Nánari upplýsingar um fjármögnun Íslands, Norðurlanda og Eystrasaltsríkja má nálgast með því að fylgjast með UNHCR á Twitter.
Markmið Flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNHCR) er að tryggja að allir sem flúið hafa átök, ofbeldi og ofsóknir í heimalandi sínu, hafi rétt til að leita hælis og finna öruggt skjól.
Nánari upplýsingar má finna á yfirlitssíðum UNCHR,