Hatursorðræða. Veröldin verður að bregðast við því „alvarlega hnattræna tjóni“, sem felst í útbreiðslu ósanninda og hatursorðræðu á netinu, sagði António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna í dag er hann kynnti skýrslu um heilindi á stafrænum vettangi.
Í skýrslunni er kynntar nokkrar meginreglur sem gætu þjónað alþjóðlegu átaki um siða- eða hátternisreglur á hvers kyns stafrænum vettvöngum. Hún er tekin saman til undirbúnings samningu hátternisreglna, sem leggja á fram fyrir svokallaðan Leiðtogafund framtíðarinnar á næsta ári. Slíkum reglum væri ætlað að tryggja heilindi og hugsanlegar varnir til að halda aftur af hættunni af viljandi- eða óviljandi rangfærslum og hatursáróðri, en standa á sama tíma vörð um tjáningar- upplýsingafrelsi.
Á meðal hátternisreglnanna eru:
- Ríkisstjórnir, tæknifyrirtæki og aðrir hlutaðeigandi skuldbindi sig til að láta hjá líða að nota, styðja eða efla rangindi eða hatursorðræðu í hvaða tilgangi sem er.
- Ríkisstjórnum ber að tryggja frjálst, lífvænlegt, óháð og fjölbreytilegt fjölmiðlalandslag, og vernda blaðamenn.
- Öllum málsaðilum ber að grípa til brýnna og tafarlausra aðgerða til að tryggja að gervigreind sé beisluð á öruggan og ábyrgan hátt og með siðfræði að leiðarljósi og í samræmi við mannréttinda-skuldbindingar.
- Tæknifyrirtækjum ber að hverfa frá viðskiptaháttum sem leggja áherslu á vinsældir á kostnað mannréttinda, einkalífs og öryggis.
- Auglýsendum og stafrænum vettvöngum ber að tryggja að auglýsingum sé ekki komið fyrir við hlið rangfærslna, ósanninda eða hatursorðræðu á netinu og að auglýsingum sem innihaldi rangfærslur verði ekki gert hátt undir höfði.
- Stafrænum vettvöngum beri að tryggja gegnsæi og veita fræðimönnum og rannsakendum aðgang að tölfræði, en tryggja þó rétt notenda til einkalífs.
Skaði sem þegar er orðinn
“Óttinn við hugsanlega ógn af hraðri þróun gervigreindar má ekki skyggja á þann skaða sem nú þegar er orðinn af því þegar stafrænni tækni er beitt til að breiða út á netinu hatursáróður, rangindi og ósannindi,“ sagði aðalaframkvæmdasjórinn.
Þess má geta að 18.júní er Alþjóðlegur dagur til höfuðs hatursorðræðu.