3.janúar 2017. António Guterres sagði að kasta yrði fyrir róða þeirri spennitreyju skrifræðis sem hamlaði starfi samtakanna, þegar hann tók til starfa sem aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna í dag.
Guterres ávarpaði starfsfólk þegar hann kom til vinnu í morgun og sagði að það væri sér mikil ánægja og forréttindi að koma aftur til starfa hjá samtökunum en hann var Flóttamannastjóri Sameinuðu þjóðanna í áratug en lét af því starfi fyrir ári.
Hann sagðist ekki gera sér neinar gyllivonir um skjótan árangur því „við lifum á erfiðum tímum.”
Auk þess að skora skrifræðið á hólm sagði hann að brýn þörf væri á umbótum í þróunarstarfi samtakanna.
„Þetta krefst mikillar vinnu af okkar hálfu en einnig samtala við aðildarríkin til þess að yfirvinna þann klofning sem enn ríki innan samtakanna.”
Myndir: Guterres ávarpar starfsfólki í morgun og býður Amina J. Mohammed, nýjan vara-aðalframkvæmdastjóra velkominn til starfa.
UN Photo/Rick Bajornas