Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna. Öryggisráðið. Mannréttindi. António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna hefur hvatt til umbóta á skipan Öryggisráðs samtakanna. Í opnunarræðu á 55.fundi Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna benti hann á að pattstaða væri í Öryggisráðinu með þeim afleiðingum að ekkert væri aðhafast í þýðingarmestu málum samtímans sem snérust um frið og öryggi.
„Ágreiningur innan ráðsins um innrás Rússlands í Úkraínu og hernað Ísraels á Gasasvæðinu eftir hræðilegar hryðjuverkaárásir Hamas 7.október, hefur grafið alvarlega, hugsanlega endanlega, undan áhrifum þess. Öryggisráðið þarf á alvarlegum umbótum að halda, jafnt hvað varðar skipan sem starfsaðferðir.“
Hann bætti við að á svokölluðum „Leiðtogafundi framtíðarinnar” á vettvangi Sameinuðu þjóðanna í haust, gæfist tækifæri til að „aðlaga alþjóðlegar stofnanir að sífellt breytilegum raunveruleika.“
Árás á Rafah, endir aðstoðar
Guterres lýsti miklum áhyggjum af mannúðaraðstoð á Gasa sem hann sagði „algjörlega ófullnægjandi.”
„Rafah er núna kjarninn í mannúðaraðstoðinni og UNRWA hryggjarstykkið í starfinu. Allsherjarárás Ísraels á borgina væri ekki aðeins hrollvekjandi fyrir rúmlega milljón palestínskra borgara sem hafa hafa leitað þar skjóls, heldur yrði það síðasti naglinn í líkkistu aðstoðarstarfs okkar.”
Verndar-áætlun
Hann hvatti til nýrra skuldbindinga við öll mannréttindi, sem „heyra til friðar og öryggis,” og benti á að Ríki bæru höfuðábyrgðina á að vernda og efla mannréttindi.
„Ég hef ýtt úr vör Verndar-áætlun Sameinuðu þjóðanna um allt kerfi samtakanna ásamt Mannréttindastjóranum,” sagði Guterres. „Þessi áætlun miðar að því að við munum í öllu starfi okkar sameinast um að hindra mannréttindabrot, greina þau og bregðast við þeim þegar þau eiga sér stað.“
Sjá einnig hér.