Gasasvæðið. Úkraína. António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna kom í dag til Brussel, en þar mun hann sitja fund leiðtoga Evrópusambandsríkjanna á morgunÍ dag hitti hann Ursula von der Leyen forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Guterres sagði á fundi með fréttamönnum að fundir hans ættu sér stað á „sérstaklega myrkum tíma“ og nú væri „hlutverk Evrópu í heimsmálum mikilvægara en nokkru sinni.“
„Í dag rambar helmingur íbúa Gasa – rúmlega ein milljón – á barmi hrikalegs hungurs,” sagði Guterres. „Þetta er fordæmalaust og ástandið fer versnandi dag frá degi. Við verðum að grípa inn í á Gasasvæðinu áður en það er of seint.“
Hann minnti á að „ekkert réttlætti andstyggilegar hryðjuverkaárásir” 7.október en ekkert réttlætti heldur „sameiginlega refsingu Palestínumanna.”
Úkraína: lausn í samræmi við alþjóðalög
Guterres sagði að Evrópusambandið væri „staðfastur bandamaður“ í málefnum Gasa og innrásar Rússa í Úkraínu sem „hvetur til lausna í samræmi við stofnsáttmála Sameinuðu þjóðanna og alþjóðalög.“
Hann hvatti til réttlátum friði sem byggði á „virðingu fyrir fullveldi, sjálfstæði, einingu og yfirráðum Úkraínu yfir land sínum innan alþjóðlegra viðurkenndra landamæra.”
Á meðan á dvöl hans stendur í Brussel mun Guterres hitta að Roberta Metsola forseta Evrópuþingsins og belgíska ráðherra.