COP 28. Loftslagsbreytingar. Þrátt fyrir fyrirheit um niðurskurð framleiðslu kunna stefnumið stjórnvalda um allan heim að leiða til allt að tvöföldunar framleiðslu jarðefnaeldsneytis fyrir 2030. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu UNEP, Umhverfisáætlunar Sameinuðu þjóðanna.
„Skýrslan um bilið á milli framleiðslu og markmiða (2023 Production Gap report) er sláandi dæmi um gríðarlegt kæruleysi í loftslagsmálum,” sagði António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna þegar skýrslan var kynnt.
Þessi aukning gerist þrátt fyrir að 151 ríkisstjórn í heiminum hafi heitið því að stefna að nettó-núll losun lofttegunda, sem valda gróðurhúsaáhrifum og loftslagsbreytingum.
Síðustu spár, benda til að eftirspurn eftir kolum, olíu og gasi i heiminum muni ná hámarki á þessum áratugi.
Þegar áætlanir ríkisstjórna um allan heim eru lagðar saman má gera ráð fyrir að kolaframleiðsla í heiminum aukist fram til 2030, en olíu- og gasframleiðsla haldi áfram að aukast til að minnsta kosti 2050.
Uggvænlegar tölur
Í skýrslunni sem Umhverfisstofnunin í Stokkhólmi, UNEP og fleiri unnu að eru ríki hvött til að hætta samám saman kolaframleiðslu og notkun fyrir 2040.
Einnig er hvatt til að minnsta kosti 75% minnkunar olíu- og gasframleiðslu fyrir 2050 miðað við 2020.
Ríkisstjórnir heims komust að samkomulagi á Loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Glasgow (COP26) fyrir tveimur árum um að hraða því í áföngum að draga úr bæði kola- og olíu-og gasnotkun. Þvert á móti hefur notkunin slegið öll met.
Næsta Loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna (COP28) hefst í Dubai í lok þessa mánaðar, nóvember 2023. Oddviti Sameinuðu þjóðanna telur að veraldarleiðtogum beri að senda „skýr skilaboð um að öld jarðefnaeldsneytis sé að ljúka og slíkt sé óumflýjanlegt.”
Markmið að fuðra upp
Til þess að svo megi verða er þörf á sannfærandi skuldbindingum um að auka notkun endurnýjanlegrar orku, auka orkusparnað og hætta notkun jarðefnaeldsneytis í áföngum til að tryggja jöfn og réttlæt umskipti.
„Jarðefnaeldsneytið veldur þvi að markmið í loftslagsmálum eru að fuðra upp. Það er tími kominn til breytinga,“ sagði Guterres.