Framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna boðar þjóðarleiðtoga til fundar til að undirbúa jarðveginn fyrir loftslagsviðræðurnar á Bali

New York, 17. september – Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna mun hitta þjóðarleiðtoga og aðra háttsetta embættismenn frá meir en 150 löndum að máli í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna 24. september í því skyni að reyna að greiða fyrir árangri í viðræðum um loftslagsmál.

Meir en 70 leiðtogar ríkja eða ríkisstjórna munu taka þátt í eins dags fundi sem verður fjölmennasti leiðtogafundur um loftslagsmál í sögunni. 

Fundinum sem haldinn er daginn fyrir almennar umræður á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna er ætlað að tryggja pólitískar skuldbindingar og koma skriði á loftslagsmál fyrir Alþjóðlegu loftslagsráðstefnuna á Bali. Þar munu aðilar Rammasamnings Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar (UNFCCC) koma saman til fundar.

“Á Bali-ráðstefnunni er brýn nauðsyn að ná árangri í baráttunni gegn loftslagsbreytingum á öllum vígstöðum, þar á meðal í aðlögun, mildun áhrifa, hreinni tækni, eyðingu skóga og nýtingu orkugjafa,” segir Ban sem hefur lýst því yfir að loftslagsmál séu meðal helstu áhersluatriða hans.   “Á Bali þarf að gefa pólitískt svar við niðurstöðum nýrra skýrslna Milliríkjavettvangs um loftslagsbreytingar (Intergovernmental Panel on Climate Change, IPCC)). Öll ríki verða að leggja sig fram við að ná samkomulagi fyrir 2009 og fullgilda það áður en núverandi Kyoto bókun rennur út 2012.” 

  Samkvæmt skýrslum Milliríkjavettvangs um loftslagsbreytingar  (IPCC),  mun hitastig á jörðunni hækka um að minnsta kosti 4.5 gráður á selsíus ef ekkert verður gert í útblæstri gróðurhúsalofttegunda. Áhrifa loftslagsbreytinga gætir nú þegar, samkvæmt skýrslunum. Norðurskautið hitnar tvisvar sinnum meira en jörðin að meðaltali og þar eru neikvæðar afleiðingar fyrir mannvist farnar að koma fram. Breytingar hafa einnig orðið í öðrum heimshlutum og  vistkerfum.  Jöklar hörfa og aðgangur að vatni minnkar. Hætta eykst á aukinni útbreiðslu eyðimarka, sérstaklega í Afríku, líkur aukast á þurrkum og hungri. Flóð munu herja á önnur svæði, yfirborð sjávar hækka og öfgar í veðurfari aukast. 

“Við getum ekki lengi haldið áfram á þessari braut,” sagði Ban Ki-moon í ræðu á Allsherjarþinginu nýlega. “Við getum ekki látið sem ekkert sé. Það er kominn tími til að taka afdrifaríkar ákvarðanir á heimsvísu.”