Alþjóðlegur dagur mannúðarstarfsmanna 19.ágúst.
Fleiri hjálparstarfsmenn voru drepnir við störf sín árið 2023, en dæmi eru um. 280 létust af völdum ofbeldis í 33 ríkjum. Meir en helmingur þeirra eða 163 voru drepnir á fyrstu þremur mánuðum stríðsins í Gasa, flestir í loftárásum. Alþjóðlegur dagur mannúðarstarfsmanna er haldinn 19.ágúst.
Allar líkur eru á því að fjöldi drepinna hjálparstarfsmanna verði hærri í ár en metárið í fyrra. Samkvæmt nýútkominni skýrslu (Aid Worker Security Report) höfðu 172 verið drepnir 7.ágúst síðastliðinn. Flestir hafa látist á Gasa og í Súdan og Suður-Súdan.
34 létust í Suður-Súdan á síðasta ári eða næstflestir á eftir Gasa. 25 höfðu látist í ofbeldisverkum í Súdan eftir að átök blossuðu þar upp í apríl á síðasta ári. Auk Ísraels og þessara tveggja landa voru flestir hjálparstarfsmenn drepnir í Eþíópíu, Lýðveldinu Kongó, Myanmar, Sómalíu, Sýrlandi og Úkraínu.
Þarfir aukast
Þörf á mannúðaraðstoð hefur aukist verulega í mörgum ríkjum, auk þess sem fleiri ríki hafa bæst á listann að því er fram kemur í yfirliti um mannúðarmál í heiminum 2024 (Global Humanitarian Overview for 2024.)
Fjöldi fólks hefur flosnað upp frá heimilum sínum vegna átaka og ofbeldis, auk loftslagsáfalla á borð við flóð, fellibyli og þurrka. Ný áköll og áætlanir um aðstoð voru gefin út vegna Bangladesh, Búrúndí, Sambíu og Simbabve. Alls þarf að aðstoða 188 milljónir í 72 ríkjum.
Í minningu mannúðarstarfsmanna SÞ í Írak
Á alþjóðlegum degi mannúðarstarfsmanna 2024 er reynt að sporna fótum við því að sjálfsagt þyki að ráðist sé á óbreytta borgara, þar á meðal mannúðarstarfsmenn og refsileysi við slíku ríki. Markmiðið er að fylkja liði almennings til að setja þrýsting á stríðandi fylkingar í átökum. Einnig að knýja veraldarleiðtoga til að grípa til aðgerða til að vernda óbreytta borgara, þar á meðal mannúðarstarfsmenn, á átakasvæðum.
19.ágúst 2003 voru 22 mannúðarstarfsmenn drepnir í sprengjutilræði á Canal hótelinu í Bagdad í Írak. Á meðal þeirra var sérstakur sendimaður aðalframvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna Sergio Vieira de Mello. Fimm árum síðar samþykkti Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna að þessi dagur, 19.ágúst, skyldi vera Alþjóðlegur dagur mannúðarstarfsmanna.
Fimm staðreyndir um mannúðarstarf í heiminum:
- Tvisvar sinnum fleiri hjálparstarfsmenn voru drepnir árið 2023 en árið áður 2022 og fjölgaði úr 118 í 261. (OCHA)
- 78 hjálparstarfsmönnum var rænt árið 2023 og 116 særðust. (OCHA)
- Langflestir mannúðarstarfsmanna sem drepnir voru eða særðust 2023 voru innlendir starfsmenn. (International NGO Safety Organisation)
- 96% drepinna hjálparstarfsmanna voru innlent starfsfólk en aðeins 4% alþjóðlegir starfsmenn. Nærri helmingur (47%) unnu hjá innlendum almannasamtökum.
- AF þeim 30 þúsund óbreyttum borgurum sem höfðu látist á Gasa á fyrstu sex mánuðum stríðsins þar, voru 150 hjálparstarfsmenn samkvæmt skýrslu frá marsmánuði á þessu ári (Humanitarian Access SCORE Report: Gaza – the first six months). Þetta er fordæmalaust í einum átökum á svo skömmum tíma.