Nærri þriðja hver kona í heiminum sætir ofbeldi. Kyndbundið ofbeldi er ein algengasta tegund mannréttindabrota í heiminum. 25.nóvember er Alþjóðlegur baráttudagur gegn kynbundnu ofbeldi.
Þá hefst jafnframt sextán daga virkni gegn kynbundnu ofbeldi fram að Mannréttindadeginum 10.desember.
Að þessu sinni er þema árlegu herferðarinnar Sameinumst! Fjárfestum í forvörnum gegn kynbundnu ofbeldi.
Talið er að 735 konur í heiminum hafi sætt kynbundnu ofbeldi.
Kvennamorð
Sérstaklega er beint sjónum að kvennamorðum.
Þau er öfgafyllsta birtingarmynd ofbeldis gegn konum og er alheimsvandamál þrátt fyrir alþjóðlegt viðnám. Samkvæmt nýjustu skýrslu UNODC, Fíknefna- og glæpaskrifstofu Sameinuðu þjóðanna og UN Women Jafnréttisstofnunar samtakanna voru 48 800 konur myrtar árið 2022, oft af ástvinum eða ættingjum. Skýrasta dæmið um hve brýn íhlutun er, er að 133 konur og stúlkur voru drepnar af fjölskyldum sínum – á dag.
Flest kvennamorð voru í Afríku en þar á eftir komu Asía, Ameríkurnar, Evrópa og Eyjaálfa. Kvennamorð eru ekki einungis innan fjölskyldna, heldur ná yfir kynferðislegs ofbeldi, hatursglæpi og skipulagða glæpastarfsemi.
Til þess að berjast gegn kvennamorðum þarf fornvarnar-áætlanir, heildstæða tölfræði og markvissan stuðning.
Ljósaganga UN Women
Ljósaganga UN Women á Íslandi fer fram laugardaginn 25. nóvember kl. 17:00, á Alþjóðlegum baráttudegi Sameinuðu þjóðanna gegn kynbundnu ofbeldi. Dagurinn markar jafnframt upphaf 16 daga átaks gegn kynbundnu ofbeldi sem UN Women á Íslandi er í forsvari fyrir ásamt Mannréttindaskrifstofu Íslands og fjölda annarra félagasamtaka.
Sjá nánar hér, hér, hér og hér.