Asha-Rose Migiro, varaframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna kynnti nýja skýrslu um samstarf Sameinuðu þjóðanna og Evrópusambandsins þegar hún hitti forystumenn þess að máli á fundum í Brussel, Strasbourg og Bonn 14. 15. mars.
Asha Rose Migiro átti fund með þróunarráðherrum Evrópusambandsins í Bonn, ávarpaði Evrópuþingið í Strasbourg og átti fund með fulltrúum framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins í Brussel.
• Í skýrslunni sem hún afhenti Louis Michel, framkvæmdastjóra þróunaraðstoðar Evrópusambandsins kemur fram að ESB er í fararbroddi í fjármögnun Sameinuðu þjóða kerfisins.
Meðal athyglisverðra staðreynda í skýrslunni má nefna:
Evrópusambandsríkin greiða :
• 38 % af reglulegum fjárlögum SÞ
• 40 % af kostnaði við friðargæslu SÞ.
• 50 % af frjálsum framlögum til stofnana, sjóða og áætlana SÞ.
Sameinuðu þjóðirnar og Evrópusambandið starfa saman í 80 þróunarlöndum og löndum sem eiga í erfiðleikum, einkum að þróunar og mannréttindamálum, mannúðarástand og að endurreisa ríki eftir átök.
Árangur samstarfsverkefna Sameinuðu þjóðanna og Evrópusambandsins
• 50 milljónir hafa kosið
• 400 milljón barna bólusett
• 2.2 milljarðar skammta af bóluefni gegn lömunarveiki notaðir
• 7 milljónir flóttamanna í 70 löndum aðstoðaðir
• 18 milljónir fermetra lands hreinsaðir af jarðsprengjum
9 milljónum skólabóka dreift til 7 milljóna barna