24. september 2007 – Ban Ki-moon framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna setti í dag fjölmennasta leiðtogafund sem haldinn hefur verið um loftslagsbreytingar. |
“Ég er sannfærður um að loftslagsbreytingar og aðgerðir okkar gegn þeim, séu það sem skilgreinir okkar tíma og þann arf sem við skiilum komandi kynslóðum,” sagði Ban við byrjun fundar leiðtoganna sem 150 sækja, þar af 80 leiðtogar ríkja og ríkisstjórna.
“Framtíðin er í okkar höndum,” sagði hann. “Við verðum að tryggja að barnabörn okkar þurfi ekki að spyrja hvers vegna við létum hjá líða að grípa til nauðsynlegra aðgerða. Þau munu þurfa að horfast í augu við afleiðingarnar.”
Hann minnti á niðurstöður Milliríkjavettvangs Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar þar sem því er slegið föstu að hlýnun jarðar sé af manna völdum. . e
“Við verðum að hafa að leiðarljósi þá staðreynd að aðgerðarleysi er dýrasti kosturinn þegar til lengri tíma er litið,” sagði Ban.
Loftslagsbretyingar hamla þróun verulega og sá árangur sem náðst hefur við að ná Þúsaldarmörkunum (MDG) gæti tapast, að sögn framkvæmdastjórans.
Hann sagði að hagvöxtur og minnkun úblástrar gróðurhúsalofttegunda gæti haldist í hendur. Hann hvatti iðnríkin til að taka forystu í baráttunni gegn loftslagsbreytingum. Hann sagði að því miður væri útblástur þeirra að aukast og aðstoð þeirra við fátækari ríki sem þurfi að aðlagast sé óviðunandi.