Mér er það í senn ánægja og heiður að senda ykkur mínar bestu kveðjur á Alþjóðlegum baráttudegi kvenna – þeim fyrsta frá því ég tók við starfi framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna.
Ég vona að á næstu árum eigið þið eftir að líta á mig sem fulltrúa ykkar og bandamann.Þessi dagur er tækifæri fyrir okkur öll, konur og karla, til að sameinast um málefni sem snertir allt mannkynið. .Valdefling kvenna er ekki markmið í sjálfu sér. Hún er skilyrði fyrir því að bæta líf allra jarðarbúa.
Enginn getur efast um þessar staðreyndir. Og enginn getur andmælt þeirri niðurstöðu leiðtoganna á Alheimsleiðtogafundinum 2005 að jafnrétti kynjanna og mannréttindi allra eru forsendur þess að efla þróun, frið og öryggi. Samt sem áður er langur vegur frá því að almenn viðurkenning í orði skili sér í verki.. Í nánast hverju einasta landi eru færri konur en karlar í ákvarðanatökustöðum. Starf kvenna er enn vanmetið, illa launað eða ólaunað. Meirihluti þeirra hundrað milljóna barna sem ekki njóta neinnar skólagöngu eru stúlkur. Meirihluti þeirra meir en átta hundruð milljóna sem eru ólæsar, eru konur.
Það sem er verst af öllu er, að ofbeldi gegn konum og stúlkum heldur áfram af fullum krafti á hverju meginlandi, í hverju landi og í hverjum menningarheimi. Það veldur miklum skaða í lífi kvenna, lífi fjölskyldna þeirra og í samfélaginu í heild.Flest samfélög banna slíkt ofbeldi en satt að segja er alltof oft litið framhjá því eða það látið viðgangast.
Einmitt þess vegna er Alþjóðlegur baráttudagur kvenna svo mikilvægur sem raun ber vitni. Hann er áminning um þá ábyrgð okkar allra að vinna að varanlegri breytingu á gildismati og atferli. Hann er hvatning til okkar um að taka höndum saman: ríkisstjórnir, alþjóðasamtök, borgaralegt samfélag og einkageirinn. Við erum brýnd til að umbreyta samskiptum kvenna og karla á öllum stigum samfélagisns. Okkur er lögð sú skylda á herðar að styrkja hvers kyns valdeflingu kvenna og stúlkna, allt frá menntun til smáfjármálastarfsemi.
Sameinuðu þjóðirnar eiga að vera í fararbroddi í þessum aðgerðum. Ég heiti því að gera allt sem í mínu valdi stendur til að svo megi verða, ekki aðeins á Alþjóðlegum baráttudegi kvenna, heldur alla daga. Ég hlakka til að starfa með ykkur að þessu sameiginlega markmiði.
Ban Ki-moon