Portúgalska. UNESCO. Dagur portúgalskrar tungu er haldinn 5.maí ár hvert. Markmiðið er að fylkja liði portúgölskumælandi fólks um allan heim og halda upp á tungumálið og menninguna.
230 milljónir tala portúgölsku sem fyrsta mál og allt að 35 milljónir sem annað mál. Portúgalska er latneskt mál sem á rætur að rekja til Portúgals. Þorri portúgölskumælandi fólks býr hins vegar í Brasilíu. 205 milljónir Brasilíumanna tala portúgölsku og eru það tæplega 80% allra portúgölskumælandi í heiminum, en aðeins 10 milljónir í Portúgal.
Portúgalska er opinbert mál Portúgals, Brasilíu, Grænhöfðaeyja, Angóla, Mósambík, Gíneu-Bissau og São Tomé og Príncipe. Þá er hún annað tveggja opinberra mála í Austur-Tímor, Miðbaugs-Gíneu og Macau.
Það væri að æra óstöðugan að telja upp alla þá kunnu portúgölskumælandi karla og konur, sem hafa öðlast heimsfrægð. Nefna má landkönnuði á borð við Magellan og Vasco da Gama, stjórnmálaleiðtoga á borð við António Guterres hjá Sameinuðu þjóðunum og José Manuel Barroso hjá ESB og NATO, að ekki sé minnst á íþróttahetjur á borð við Pelé, Eusebio og Cristiano Ronaldo.
Sömbuna, bossanova og fadó-tónlistina má rekja til Brasilíu og Portúgals og þekkt tónlistarfólk á borð við Antônio Carlos Jobim, Joao og Astrud Gilberto og ofurfyrirsætuna Gisele Bündchen. Þá er ástæðulaust að gleyma José Saramago, eina portúgölskumælandi rithöfundi sem hlotið hefur Nóbelsverðlaunin í bókmenntum, José Amado, Paulo Coelho, Fernando Pessoa og arkitektinum Oscar Niemeyer.
Sjá nánar á vefsíðu UNESCO.