?? 75 ára afmæli – 75 dæmi um að Sameinuðu þjóðirnar skipti sköpum ??
Alþjóða póstmálastofnunin (UPU) greiðir fyrir dreifingu alþjóðlegs pósts. Nútíma póstþjónusta gegnir þýðingarmiklu hlutverki í að þróa félagsleg- og menningarleg samskipti og viðskipti á milli þjóða og fyrirtækja.
640 þúsund pósthús í heiminum eru eitt umfangsmesta tengslanet sem um getur á heimsvísu. Þau greiða fyrir dreifingu upplýsinga, vöru og peninga.
Internetið og ný tækni hefur skapað ný tækifæri fyrir póstþjónustuna, sérstaklega í rafrænum viðskiptum og sölu á netinu. Póstþjónustan er enn mikilvæg brú á milli raunheima og stafrænna- og fjárhagslegra viðskipta í netheimum. Að auki gegnir póstþjónustan lykilhlutverki í sjálfbærri þróun í heiminum.