?? 75 ára afmæli– 75 dæmi um að Sameinuðu þjóðirnar skipti sköpum (32) ??
Bólusótt er fyrsti og eini sjúkdómur sem hefur verið útrýmt alls staðar í heiminum. Bólusótt hafði fram að því herjað á mannkynið í 3000 ár. Hafði hún orðið 300 milljónum manna að bana á tuttugustu öldinni einni, eða 4 milljónum á ári.
Sigur
Þrettán ára átaki undir forystu Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) lauk með því að því var lýst yfir að bólusótt hefði verið útrýmt á jörðinni árið 1980. Fyrir utan öll mannslífin sem bjargað hefur verið, er talið að einn milljarður Banaríkjadala sparist á ári vegna bólusetninga og eftirlits. Það er þrisvar sinnum meira en herferðin til að útrýma þessum vágesti kostaði í heild.
Mörg þeirra grundvallarúrræða í lýðheilsu sem notuð voru í sigursælli baráttu til að vinna bug á bólusótt hafa verið notuð gegn Ebola og COVID-19. Nefna má eftirlit, greiningu, rakningu og upplýsingaherferðir til að virkja almenning sem á í hlut.
8.maí 2020 fagnaði WHO 40 ára afmæli sigursins gegn bólusótt. Gefið var út frímerki á vegum Sameinuðu þjóðanna til að minnast þessa í samvinnu við WHO. Frímerkið er til heiðurs þeim milljónum manna sem störfuðu saman í baráttunni, jafnt veraldarleiðtogar og alþjóðlegar stofnanir sem sveitlæknar og aðrir heilbrigðisstarfsmenn.
MótumFramtíðOkkar #UN75