Árið 2021 er ár Friðar og trausts, skapandi hagkerfis, heilbrigðis- og umönnunarstarfsfólks, ávaxta og grænmetis og útrýmingar barnavinnu á vettvangi hinna ýmsu stofnana Sameinuðu þjóðanna.
Frá árin 1959 hafa Sameinuðu þjóðirnar helgað ár og jafnvel áratugi tilteknum málefnum. Þetta er gert til að vekja athygli á þjóðþrifamálum og hvetja til alþjóðlegra aðgerða.
Fórnfýsi verðlaunuð

Óneitanlega er viðeigandi að heiðra starfsfólk í heilbrigðis- og umönnunargeiranum með því að helga þeim árið 2021. Alþjóða heilbrigðismálaþingið ákvað á síðasta ári að gera það sem viðurkenningu við fórnfýsi starfsfólks í þessum geirum fremst í víglínunni í COVID-19 faraldrinum.
Hins vegar er þetta ekki eina alþjóðlega árið á vegum Sameinuðu þjóðanna. FAO, Matvæla og landbúnaðarstofnun samtakanna hefur lýst 2021 Alþjóðlegt ár ávaxta og grænmetis. Markmiði era ð vekja athygli á því hve ávextir og grænmeti eru næringarríki og neysla þeirra heilsusamleg.
Jafnframt er skorin upp herör gegn sóun og tapi á ávöxtum og grænmeti í fæðukerfinu.
Barnavinna

Þá mun Alþjóða vinnumálastofnunin, ILO, beina kastljósinu að barnavinnu á Alþjóðlegur ári upprætingar barnavinnu 2021. Sérstaklega er vakin athygli á þvi að COVID-19 faraldurinn muni ýta enn fleiri börnum á vinnumarkaðinn.
2021 er einnig:
- Alþjóðlegt ár friðar og trausts
- Alþjóðlegt ár skapandi hagkerfis í þágu sjálfbærrar þróunar
- Alþjóðlegt ár öryggismenningar í flugi
Venjulega eru það eitt eða fleiri aðildarríki Sameinuðu þjóðanna sem leggja til að helga tiltekið ár ákveðnu málefni. Tillaga er síðan lögð fram á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna. Á hinn bóginn getur slíkt gerst á vettvangi einstakra stofnana á vegum samtkanna.
Áratugir

Eftirfarandi áratugir helgaðir málefnum hefjast 2021 og lýkur 2030:
- Áratugur Sameinuðu þjóðanna um hafrannsóknir í þágu sjálfbærrar þróunar
- Áratugur Sameinuðu þjóðanna um endurreisn vistkerfa
- Áratugur Sameinuðu þjóðanna um heilbrigða öldrun
- Annar áratugur aðgerða í þágu umferðaröryggis
- Fjórði alþjóðlegi áratugur upprætingar nýlendustefnu