Kynferðis- og frjósemisheilbrigði kvenna. 130 sinnum líklegra er að afrískar konur látist af barnsförum eða á meðgöngu en konur í Evrópu og Ameríku. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu UNFPA, kynferðis- og frjósemisheilsustofnunar Sameinuðu þjóðanna.
Í skýrslunni er því haldið fram að kynþáttahyggj, kynjamisrétti og annars konar mismunun hindri þróun á sviði kynferðis- og frjósemisheilbrigði kvenna.
Fátækar konur og stúlkur, sem tilheyra þjóðernis- eða kynþátta-minnihlutum eða eru frumbyggja eða búa á átakasvæði eiga meira á hættu að láta lífið vegna skorts á aðgengi að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu.
– Afrísk kona sem lendir í erfiðleikum á meðgöngu eða við barnsfæðingu er hundrað og þrjátíu sinnum líklegri til að týna lífi en konur í Evrópu og Norður Ameríku.
– Talið er að rúmlega helmingur fyrirbyggjanlegra dauðsfalla í tengslum við meðgöngu og fæðingu gerist í ríkjum þar sem mannúðarhamfarir eða átök standa yfir. Alls eru það næstum 500 dauðsföll á dag.
– Konur af afrískum uppruna í allri Ameríku eiga meira á hættu að deyja af barnsförum en hvítar konur. Í Bandaríkjunum er hlutfallið þrisvar sinnum hærra en landsmeðtaltalið.
– Frumbyggjakonur eiga meira á hættu en aðrar konur að deyja af völdum vandkvæða á meðgöngu eða við fæðingu.- Tíu sinnum líklegra er að konur með fötlun verði fyrir kynbundnu ofbeldi en aðrar konur.
“Á líftíma einnar kynslóðar hefur tíðni óætlaðrar þungunar minnkað um nærri fimmtung, mæðradauði minnkað um þriðjung og lög verið sett gegn heimilisofbeldi í meir en 160 ríkjum,” sagði Natalia Kanem forstjóri UNFPA þegar skýrslan var kynnt.
Í skýrslunni segir að með því að fjárfesta fyrir 79 milljarða Bandaríkjadala í lág- og meðaltekjuríkjum fyrir 2030 megi koma í veg fyrir 400 óætlaðra þunganna, bjargi megi milljón mannslífa og spara 660 milljarða dala.